Gott er að vera við öllu búinn á fjöllum og nauðsynlegt að kunna réttu handtökin í skyndihjálp þegar lagt er upp í göngu. Slysin gera ekki boð á undan sér en hvorki lengd göngunnar né hæð fjallsins gefur góðan spádóm um óhöpp. Við hvetjum alla til þess að dusta rykið af skyndihjálparkunnáttunni áður en lagt er upp í ferð á Fimmvörðuháls.
Fyrir þá sem ekki kunna til verka heldur Ferðafélag Íslands námskeið í skyndihjálp á fjöllum í febrúar. Námskeiðið eru þrjár kvöldstundir, dagana 4., 6. og 11. febrúar. Nánari upplýsingar hér.
Rauði Kross Íslands heldur einnig almenn skyndihjálparnámskeið og upplagt er að sækja sér skyndihjálparapp RKÍ án endurgjalds.