Í tilefni fjögurra ára gosafmælis á Fimmvörðuhálsi sækir jeppadeild Útivistar Hálsinn heim helgina 15.-16. mars næstkomandi. Lagt verður af stað frá Reykjavík á laugardagsmorgni og komið heim aftur á sunnudagskvöldi. Ekið verður yfir Mýrdalsjökul að Fimmvörðuskála Útivistar þar sem gist verður yfir nóttina.
Nánari upplýsingar veitir Ferðafélagið Útivist og hægt er að bóka ferðina hér.