Það er alltaf jafn gaman að sjá myndir af Fimmvörðuhálsi að vetri til. Þó stórbrotin náttúrufegurðin skarti sínu fegursta í sólargeislum sumarsins er vetrarhamurinn einnig tilkomumikill. Þessar myndir voru teknar af Fimmvörðuskála í dag og óhætt að segja að skálinn sé í vetrarbúningnum þessa dagana.
Ekki eru úr vegi að benda á einkar fallegar myndir frá 2015, en þær má sjá hér.
Myndir: Guðfinnur Þór Pálsson