Merki vefsíðunnar Fimmvörðuháls.is er innblásið af gönguleiðinni sjálfri og jöklunum Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli. Punkturinn á neðanverðri myndinni táknar Skóga, merkið fyrir miðju skálana á Fimmvörðuhálsi, Baldvinsskála og Fimmvörðuskála og efra skálamerkið táknar skálann í Básum, Goðalandi. Litavalið er innblásið af umhverfisþáttum tengdum eldgosinu á Fimmvörðuhálsi, rauði liturinn í kvikuna, svartgrái í Goðahraunið og ljósgrái í öskusveipaða jöklana.
Hönnuður er eigandi síðunnar, Guðmundur Örn Sverrisson.