Í Básum hefur Ferðafélagið Útivist byggt upp aðstöðu fyrir félagsmenn og annað ferðafólk sem gert hefur sér ferð þangað. Ganga yfir Fimmvörðuháls getur ýmist byrjað eða endað í Strákagili, í um 10 mínútna göngufæri frá skálunum í Básum en tjaldvæðið í Strákagili tilheyrir Básum. Aðstaða í Básum er til fyrirmyndar, tjaldsvæðið er stórt og margir skemmtilegir næturstaðir finnast á bak við runna eða á milli trjáa gefi fólk sér örlitla stund að líta í kringum sig að fallegu stæði.
Tveir svefnskálar eru í Básum og taka þeir 83 í gistingu. Salernisaðstaða er víða á tjaldsvæðum auk rúmgóðrar salernis- og sturtuaðstöðu við skálana.
Nánari upplýsingar um Bása og má nálgast á vefsíðu Útivistar og þar má einnig panta gistingu.
Hæð:
GPS-hnit: N 63°40.559 V 19°29.014