Á Fimmvörðuhálsi eru tveir skálar, Baldvinsskáli og Fimmvörðuskáli.
Baldvinsskáli er í eigu Ferðafélags Íslands og var endurnýjaður skáli fluttur á Fimmvörðuháls haustið 2012. Boðið er uppá gistingu í skálanum og skálavörður gætir hússins að sumarlagi. Fimmvörðuskáli er í eigu Ferðafélagsins Útivistar þar sem boðið er upp á gistingu og skálavarsla er í húsinu yfir háannatíma.
Þá er skáli Útivistar í Básum á Goðalandi rétt við upphaf/endi gönguleiðarinnar að norðanverðu og örlítið norðar er Skagfjörðsskáli Ferðafélags Íslands í Langadal, Þórsmörk.
Nánari upplýsingar um skálana er að finna hér: