Ferðafélagið Útivist fór fyrstu ferð sumarsins um liðna helgi. Enn er talsvert mikið af snjó en færðin hefur skánað mikið frá því sem var í þarsíðustu viku, eins og greint var frá hér á síðunni fyrir helgi. Mat Útivistar er að ekkert sé því til fyrirstöðu að leggja á Hálsinn ef fólk er hraust og vel búið.
Þá skiptir veðrið miklu máli en hægt er að skoða veðurspár hér.