Er ferð á Fimmvörðuháls hluti af þínu áramótaheiti?
Enginn vafi liggur á því að fjölmörg áramótaheit landsmanna hafa snúist um að koma sér í form, missa nokkur kíló, bæta þol, styrk og almenna líðan. Er ekki fín hugmynd að stefna að því að ganga á Fimmvörðuháls næsta sumar, nota næstu mánuði í að losa sig við konfektið og smákökurnar og komast skammlaust upp tröppurnar í Perlunni? Ganga á Fimmvörðuháls er verðugt takmark sem launar í fegurð náttúrunnar og nærir ævintýraþránna.
Sem lið í undirbúningi er óhætt er að benda á Útivistarræktina Ferðafélaginu Útivist sem hittist tvisvar í viku hjá og kostar ekki neitt.