Helgina 20.-22. september 2013 gekk stór hópur skiptinema á Fimmvörðuháls á vegum ESN Reykjavik (Erasmus Student Network) sem er félag erlendra skiptinema í Reykjavík. Hátt í hundrað manns tóku þátt í ferðinni sem upphaflega átti að vera mun smærri í sniðum. Ferðin gekk vel, hópurinn lauk göngunni á níu og hálfri klukkustund og veður var gott.
Morgunblaðið og Vísir.is fjölluðu um málið.