Ritstjóri og eigandi vefsíðunnar Fimmvörðuháls.is er Guðmundur Örn Sverrisson.
Ég var fyrst dreginn á Fimmvörðuháls af föður mínum níu ára gamall, hef verið skálavörður í Fimmvörðuskála, fararstjóri í göngum yfir Fimmvörðuháls og hef einlægan áhuga á gönguleiðinni.
Útivist og göngur í náttúrunni hafa án efa sett mark sitt á líf mitt og er ég ötull við að breiða út fagnaðarerindið. Göngur og samverustundir í óspilltri náttúru eru líkama og sál mikils virði og opna hugann fyrir einlægni og auðmýkt sem hverjum manni er sannarlega mikilvægt, óháð samfélagslegum mælikvörðum um stöðu þeirra í lífinu.
P.S. Ég er líklega eini maðurinn sem tekur með sér tvo lítra af Pepsi Max í göngu á Fimmvörðuháls!
Smelltu hér ef þú ert starfsmaður Ölgerðarinnar og hefur áhuga á samstarfi Fimmvörðuháls.is og Pepsi Max.