Flestum ferðamönnum þykir sjálfsagt mál að hirða sitt sorp. Á Fimmvörðuhálsi eru engar sorptunnur og engin sorphirða frá skálunum tveimur. Ferðamönnum er bent á að losa sig við slíkt í Básum og í Skógum. Athygli er vakin á því að ekki er sorphirða frá skálunum tveimur á Fimmvörðuhálsi.
Fyrir kemur að ferðafólk missir rusl óviljandi og eru aðrir ferðamenn hvattir til þess að hafa lítinn poka meðferðis til að týna upp smálegt sorp sem hefur gleymst á leiðinni eða fokið frá ferðamönnum.
Ferðafólk er hvatt til þess að halda sig á stígum og umgangast viðkvæma náttúru með virðingu. Góð regla er að skilja ekkert eftir nema fótspor á stígum og taka ekkert með sér nema minningar um góða ferð og að skilja við farinn veg í sama ástandi eða betra en hann var í þegar komið var að honum.
Fimmvörðuháls.is hvetur alla til þess að sýna gott fordæmi og að umgangast náttúru Íslands með virðingu.